Frá fyrsta kaffibolla til síðasta bjórs
hér er gott að vera
Laundromat Café er veitingastaður þar sem við bjóðum upp á morgunmat, brunch, hádegismat og kvöldverð, alla daga vikunnar. Við tökum á móti fjölskyldufólki, vinahópum, pörum, kunningjum, vinnufélögum og öllum sem vilja eiga góða stund saman.
Á morgnana ilmar húsið af kaffi og nýbökuðu bakkelsi, yfir daginn er notalegt að setjast niður í hádeginu og á kvöldin koma vinir og hópar saman, fá sér safaríkan borgara eða deila Super Nachos yfir góðu spjalli. Um helgar fyllist staðurinn af lífi og góðri stemningu þar sem allir finna sitt pláss.
Allir velkomnir, alltaf.

HAPPY HOUR
Happy hour er alla daga frá 16 til 18. Kíktu við eftir vinnu og skálaðu með þínu fólki.
Happy hour á Laundromat Café er alla daga frá klukkan 16 til 18 við Austurstræti í Reykjavík. Á boðstólnum er bjór frá XXX kr., rauðvín frá XXX kr. og hvítvín frá XXX kr. Hvort sem þú ert að leita að happy hour eftir vinnu, köldum bjór í miðbænum eða notalegri stund áður en kvöldið hefst, þá eru allir velkomnir, alltaf.
FJALLAÐ UM Í MICHELIN GUIDE
MICHELIN Guide fjallaði um Laundromat Café í Reykjavík nýlega og segir: „A quirky local icon, The Laundromat Café serves a concise, unfussy brunch menu.“
Í greininni, sem snýst um tveggja daga ferð til Reykjavíkur, er okkur lýst sem sérstökum og skemmtilegum stað í hjarta borgarinnar og talað um hvað brunchinn okkar er góður. Við erum auðvitað hæstánægð með þetta hrós, en Laundromat hefur verið hluti af miðbæ Reykjavíkur frá árinu 2011, með rætur í Kaupmannahöfn allt frá 2004.
Sjá greinina hér.


SUPER NACHOS TILBOÐ
Super Nachos og tveir bjórar eða gos á 3.990 kr. Stór skammtur til að deila.
Super Nachos á Laundromat Café er einn allra vinsælasti rétturinn okkar, stór og stútfullur skammtur með osti, jalapeños, guacamole, salsa, sýrðum rjóma og kjúklingi, gerður til að deila. Tilboðið gildir alla virka daga frá klukkan 18, þá færðu Super Nachos og tvo bjóra eða gos á 3.990 kr.

