BÖRNIN

Laundromat er fjölskylduvænn veitingastaður í hjarta Reykjavíkur þar sem öll fjölskyldan er velkomin, alla daga frá morgni til kvölds.

Barnahornið

Á neðri hæðinni er sérstakt leiksvæði fyrir börnin þar sem þau geta leikið sér á meðan fullorðna fólkið nýtur matarins í ró og næði. Þægilegt fyrir fjölskyldur sem vilja gefa sér góðan tíma.

Barnamatseðill

Við erum með sérstakan barnamatseðil með réttum fyrir yngri gestina, allt frá barna-brunch og kjúklingalundum til ostborgara, kjötbolla og fisks með frönskum. Allir réttir eru bornir fram með meðlæti sem börnum þykir gott.

skoða barnamatseðilinn

Barnastólar

Við eigum barnastóla fyrir yngstu gestina, svo öll fjölskyldan komist vel fyrir og líði vel.