UM OKKUR
Laundromat er veitingastaður í hjarta Reykjavíkur þar sem dagurinn byrjar á ríkulegum morgunverði, góðu kaffi og mimosu og endar á borgara og bjór. Við bjóðum upp á morgunmat, brunch, hádegismat og kvöldmat alla daga, og happy hour er frá 16 til 18.
Veitingastaður í miðbæ Reykjavíkur síðan 2011
Sagan byrjaði í Kaupmannahöfn árið 2004. Hugmyndin var einföld en óvenjuleg, kaffihús og þvottahús undir sama þaki, staður þar sem fólk gæti sest niður með bók, fengið sér gott að borða og þvegið þvottinn í leiðinni. Árið 2011 kom Laundromat til Reykjavíkur og festi rætur við Austurstræti, og síðan þá hefur staðurinn verið einn af föstu punktunum í miðbænum.
Kvöldverður, happy hour og fjölskyldustund á einum stað
Hjá okkur eru allir velkomnir, hvort sem það eru vinahópar, pör, vinnufélagar eða fjölskyldur. Á kvöldin koma vinir og hópar saman yfir borgara, köldum bjór og góðu spjalli, og sem fjölskylduvænn veitingastaður erum við einnig með sérstakt leiksvæði fyrir börnin.
Laundromat Café er á meðal staða sem MICHELIN Guide fjallar um í Reykjavík, þar sem staðnum er lýst sem sérstökum og skemmtilegum í hjarta borgarinnar, og staðurinn hefur einnig hlotið Travelers' Choice viðurkenningar á Tripadvisor.
Hér er gott að vera.
